Dýrin í Saigon
Gudmundsson, Sigurdur
Regular price €15,00
“Í Dýrunum í Saigon er Sigurður Guðmundsson myndlistarmaður fimmfaldur, því auk mannsins búa í honum hestur sem er skáld, samkynhneigður svanur, máfur sem tjáir sig eingöngu á ensku og fjórtán ára stelpa sem er heimspekingur. Þessi kvintett nýtur lífsins af áfergju, yrkir og myndar úr sér hin mikilfenglegustu listaverk.
Dýrin í Saigon (2010) er þriðja skáldsaga Sigurðar Guðmundssonar, skrifuð á tíu mánaða dvöl höfundar í Víetnam árið 2008. Þar gerir hann tilraun til að komast af án tungumáls, segja skilið við eigin menningu en lifa einsog viturt dýr. Þetta er í senn skáldlegt og heimspekilegt verk og óvenjuleg ástarsaga.”
An artist novel in 52 chapters, text in Icelandic.
Soft cover, 20 x 12,5 cm, 228 pages, Reykjavík 2010
ISBN: 978-9979-3-3160-5